London!!
eftir
8 mánuði
13 daga
26.01.2012 19:24
Rúsínubaukurinn tómur!
keypti poka af rúsínum í gær og baukurinn er samt tómur... þrjár ástæður eiginlega... fyrsta lagi ég ... öðru lagi var grjónagrautur í matinn í gær... og í þriðja lagi þá er ég ekki sú eina á heimilinu sem finnst þetta gott ;) Anton kláraði úr bauknum í dag.

Rakst á þessa súper girnilegu mynd áðan... hrikalega einfalt og örugglega gott! pottþétt komið á "verð að prófa" listann minn. Á þeim lista er líka þetta hérna... smellið á myndina ef þið viljið sjá uppskriftina!

átti fínan dag í ræktinni... tók góðan tabata tíma, alls kyns æfingar sem reyndu á kroppinn... Lyftingar eru svo á dagskrá morgundagsins... skyldi ég einhvern tíman ná að sjá einhverja vöðva undir öllu þessu oversize skinni sem hangir utan á mér?

Skrifað af Lena
25.01.2012 21:40
Helvítis fokking fokk

Þessi mynd lýsir ágætlega ástandi hjá mér þessa dagana. Nei, reyndar ekki þessa dagana heldur þessi kvöldin. Á hrikalega erfitt eftir að ég kem heim á kvöldin... endalaust nart í hitt og þetta... lesist sem "er næstum því komin með lögheimili í rúsínu, döðlu og hnetu baukunum"... Er alveg uþb að verða komin með ógeð af þessu rugli og vildi óska að ég gæti bara farið að sofa strax eftir kvöldmat! myndi leysa ýmislegt!
Er að öðru leyti bara fín - komin með nýtt plan í ræktinni og er hálfnuð með fyrstu vikuna. Sá í dag að ég á eftir að miðvikudagar eru góðir dagar... tvíhöfði og þríhöfði teknir í gegn og svo obbolitlar mallaæfingar á eftir :) Er að rembast við að lyfta þungt... fer þetta á þrjóskunni - en ég get svo svarið fyrir að handleggirnir skulfu í dágóðan tíma eftir æfingu í dag!
Skrifað af Lena
24.01.2012 21:36
tótallí in love!
Jebb, það er sko hægt að falla fyrir furðulegustu hlutum sko! Er fyrir lifandis löngu búin að fá ógeð á öllum handónýtu pottunum mínum en hef ekki tímt að endurnýja ... þetta er brjálæðislega dýrt hér ef maður ætlar að kaupa almennilegar græjur. Sá á netinu fyrir löngu Kitchen Aid pottasett og skoðaði það svo úti í Boston sl haust. Hefði sko pottþétt keypt svoleiðis þar en plássið í töskunum var bara ekki nóg :/ en svo rakst ég á þetta á íslenskri pöntunarsíðu en hikaði við að kaupa... kostar 40þús kall :/ en svo voru pabbi og mamma svo elskuleg að gefa okkur pening í jólagjöf og við nýttum það í að kaupa, bættum bara við því sem þurfti :)
Pakkinn kom í dag.... og ég er þvílíkt ánægð!

Þetta var afrakstur fyrstu máltíðarinnar eldaðri á fína fína dótinu mínu.... ja, amk mín máltíð - hin fengu svínasnitsel í raspi, steikt í smjöri og með öllu því sem er svooooo gott en fer svooo illa í mig - svo ég fékk fisk :)

20.01.2012 16:46
Að vera feitur í hausnum
Þetta er kannski lúxus vandamál en vandamál samt eiginlega... ég á nefnilega stundum svolítið erfitt með það að í hausnum á mér er ég miklu stærri en ég er. Og þá ekki á hæðina :/ Ég sé til dæmis afturendann á mér ennþá sem huge... hann er reyndar stór og slappari en blaut tuska... veit það alveg. En hann er ekki alveg svona samt

En þetta brýst stundum út á þann hátt að þegar ég kaupi mér föt þá verð ég að máta fyrst því annars kaupi ég einhverja vitleysu... eins og um daginn... keypti mér ofsalega fínan kjól og mátaði ekki. Fannst hann þröngur og lítill og valdi stærð í samræmi við það... og af því að ég er á leið út að borða í kvöld þá dróg ég fram fína kjólinn og skellti mér í viðeigandi undirföt (lesist sokkabuxur og nærföt sem halda öllu læra og rassaskvapi á sínum stað!) og í kjólinn... ALLTOF stór kjóll! Gæti líklegast hæglega bætt á mig 10-15kg og samt passað í hann, jafnvel meira :/

stal þessari mynd af netinu af eins kjól ;)
Skrýtið samt að eins og ég á erfitt með að læra á þessa "nýju ég" þá horfi ég stundum á gamlar myndir af mér og skil ekki hvernig í veröldinni ég gat gert sjálfri mér það að verða eins og ég var!

19.01.2012 17:46
eins og krakki að bíða eftir jólunum
var að fá tölvupóst sem sagði mér að ég fengi pakka á þriðjudag. Er sko búin að vera eins og krakki sem bíður eftir jólunum... bíð þvílíkt spennt eftir að fá pakkann minn! Innihaldið í honum er nefnilega það sem ég ákvað að kaupa fyrir jólagjöfina frá mömmu og pabba!

Mikið rosalega sem það verður gaman að henda pottadruslunum mínum út í tunnu!
Skrifað af Lena
19.01.2012 12:55
Neyðarpakki nauðsynlegur...
Fólk eins og ég... amk þeir sem ekki geta borðað hvað sem er... lendir stundum í vandræðum. Ég vinn þrjá daga í viku þar sem boðið er uppá mat í hádeginu í mötuneyti. Fínustu kokkar þar og maturinn góður. Og ekki verra að hann er ekkert svo dýr heldur. Matseðillinn birtist með góðum fyrirvara og því get ég oftast vitað að morgni hvort að í hádeginu bíði mín eitthvað sem að ég get borðað. Þá daga sem að ég sé fyrirfram að í boði sé eitthvað sem hentar mér ekki... þá tek ég með nesti. Einfalt mál... amk svona oftast
En svo koma dagar eins og núna... eitthvað klikkaði í skipulaginu í mötuneytinu og það sem var á matseðli dagsins var alls ekki í matinn. Í staðinn var matur sem að ég hefði að öllu venjulegu sleppt. Í þetta skiptið vegna fituinnihalds matarins og skorts á grænmeti.... en ég var ekki með nesti svo að ég borðaði og auðvitað er það að hefna sín svolítið á mér núna...
niðurstaðan... koma mér upp "neyðarpakka" !
Hef stundum orðið vör við að sumu fólki finnst ég matvönd og full af sérvisku þegar kemur að mataræði.... bara af því að ég borða ekki hvað sem er. Í flestum tilfellum dugar einföld útskýring á málinu.
Ég á þó alveg mína slæmu daga, þar sem ég ráfa um eins og hungrað ljón og borða allt sem kemst uppí mig! Stend jafnvel með hausinn á kafi í rúsínudallinum á kvöldin - nú eða fer 10 ferðir í eldhúsið og sæki mér bara SMÁ döðlur... þeas smá í hvert skipti en skiptin bara alltof mörg. Þessir dagar eru oft alveg skelfilegir... en sem betur fer þá á ég góða daga líka :)
Annars hefur hugurinn verið á fleygiferð á hverjum morgni þessa viku um leið og ég rölti á göngubrettinu... er að velta fyrir mér markmiðum mínum og spá í hvort að ég sé nokkuð uþb að verða klikkuð... Markmiðin eru nefnilega alveg pottþétt í margra augum heimskuleg og óraunhæf - en ekki fyrir mér. Enda ætla ég ekki öðrum að ná mínum markmiðum... það ætla ég að gera sjálf!

18.01.2012 12:47
ég held að almættið sé að hefna sín á mér!
Já, svei mér þá ef að þetta er ekki bara hrein og klár hefnigirni í almættinu! Ég slapp algjörlega við morgunógleði í bæði skiptin þegar að ég gekk með börnin... í staðinn dæmdi hann mig til að glíma við ömurlega aukaverkun eftir magaaðgerðina... Sum matvæli get ég alls ekki borðað vegna flökurleika sem hellist yfir mig fljótlega eftir neyslu.

Lengi vel voru það allar mjólkurvörur og næstum allt brauð. Skyrát til dæmis var fljótlega leið til að dæma mig í vanlíðan og slappleika. Varð bara viðbjóðslega flökurt, stundum fylgdi mikill kuldi og skjálfti. Þetta hefur þó lagast að miklu leyti, amk með mjólkurvörurnar - brauð er enn frekar mikill skaðvaldur.
En enn sit ég uppi með að öðru hvoru... jafnvel alveg án þess að ég hafi verið að borða eitthvað rusl eða óhollt, og eitthvað sem ég hef oft borðað áður... þá verður mér vibba flökurt eftir að borða. Þetta er mest þreytandi aukaverkunin sem ég sit uppi með.
Samt sem áður þá sé ég ekki eftir neinu! held bara áfram að basla við þetta og vona það besta... að einn daginn verði ég laus við þetta :)

17.01.2012 21:12
Þegar að græðgin er alveg að fara með mann...
og mann langar í eitthvað brjálæðislega gott og hausinn gjörsamlega gargar á SYKUR... er þá ekki ágætis lending að baka eitthvað sætt og gott til að gúffa í sig??

Þessar elskur eru búnar til úr þessu:
1 epli... flysjað, kjarnhreinsað og rifið
1/2 bolli heilhveiti
1/2 bolli haframjöl
tæplega bolli af soðnu, kældu quinoa
1/3 bolli kókosolía
1/2 tsk vínsteinslyftiduft
1/4 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
örlítið himalaya salt
4 msk ca af graskersfræjum
8 rifnar döðlur
já og 1 egg... ekki má gleyma því!
öllu sullað saman, formið spreyjað og inní ofn á 180 þangað til að manni líst orðið vel á litinn :)
Upphaflegu uppskriftina fann ég hér. Þetta að ofan var mín útgáfa í þetta skiptið. Hef líka prófað að setja cashew hnetur og það var awsome!

17.01.2012 06:48
Að setja sér markmið
Síðan að ég tók þá ákvörðun að sækja um að komast á Kristnes og fara í gegnum undirbúning fyrir magaminnkunaraðgerð og eftir allt það sem kom í framhaldinu... ég hef oft spáð í af hverju virkaði þetta fyrir mig? Ég hafði í gegnum árin reynt nær óteljandi aðferðir við að ná tökum á mínum sjúkdómi, sumar hverjar reyndi ég oft. Oft náði ég ágætis árangri, aldrei góðum reyndar, en alltaf bara tímabundnum.
En hvað gerðist á þessum tímapunkti?? Get svo svarið fyrir það að eins og ég hef nú mikið spáð í þessu... þá get ég enn ekki svarað sjálfri mér þessari spurningu!
En hvað sem það var... þá er ég rosalega þakklát öllu því sem að leiddi mig inná þessa braut því á margan hátt hefur þetta bjargað mér.
Eitt af því mikilvægasta sem ég hef lært af öllu þessu er sú staðreynd að langstærstur hluti þeirrar vinnu sem fara þarf fram til að ná árangri... er tiltekt í hausnum á manni. Og ekki bara svona yfirborðs "já, núna ætla ég sko bara að borða hollt" tiltekt... svoleiðis virkar bara í takmarkaðan tíma.
Hugarfar okkar skiptir gríðarlegu máli. Ef maður er fyrirfram búinn að ákveða að þetta og hitt sé ekki ætt... þá er það einfaldlega vont þegar að maður prófar að borða. Og hver okkar endist í því að borða eitthvað sem okkur finnst vont? þó svo að við vitum að þetta geri góða hluti fyrir okkur ;) Neikvæðni er í þessu (eins og svo mörgu öðru) gríðarlega skemmandi... Jákvæðni kemur okkur svo mikið lengra!
Í öllum mínum tilraunum til þess að grennast þá var ég alltaf að setja mér markmið. Næstum því alltaf voru þau stór og mikil, ég ætlaði alltaf helst að græja þetta mjög snöggt og vel. Og ég trúði oft á tíðum því sem auglýst var... eiginlega trúði ég hverju sem var í þessum efnum. Og þetta hafði alltaf áhrif á þau markmið sem ég setti mér.
Eitt af því sem að er hluti af meðferðinni á Kristnesi er að setja sér markmið á góðan hátt. Þegar að ég fór svo í viðskiptafræðinámið þá tók ég skemmtilegan kúrs í markaðsfræði. Eitt af því sem var kennt þar var SMART markmiðasetning. Þegar að ég fór í gegnum þennan kúrs þá verð margt af því sem að ég lærði á Kristnesi mikið skýrara
Hugmyndafræðin gengur útá að markmiðin sem þú setur þér ættu að vera
S = Sértæk... Þau þurfa að vera skiljanleg, læsileg og mikilvæg
M = Mælanleg... Á einhvern hátt þarf að vera hægt að mæla árangur til að vita
hvenær markmiðinu hefur verið náð
A = Áreiðanleg! Ekki setja markmið sem er fyrirfram útilokað að þú getir náð!
R = Raunhæf! Ekki setja markmið og hafa tímarammann til að ná þeim alveg út úr kú!
T = Tímasett... hvenær á að vera búið að ná markmiðinu?
Hver þáttur í þessu hefur í raun áhrif á aðra þætti... En það er mjög gott að hafa þetta í huga. Einn þáttur í markaðsfræðikúrsinum var að vinna verkefni sem tók á þessu, það var rosalega skemmtileg vinna og fín einkunn fékkst :) verstur fjárinn að ég finn ekki textann í dag!
Haugur af fínu lesefni til á vefnum um SMART markmiðasetningu... prófið bara að "gúggla"
Ég er með mín markmið á hreinu, amk varðandi heilsuna!

Hætt að röfla í bili - fullt í viðbót sem mig langar að koma frá mér en það kemur vonandi bara seinna!
Já og ástæðan fyrir því að taka lykilorðið... engin sérstök eiginlega...

11.01.2012 22:39
Miðvikudagur er viktoríudagur
Jamm, það er amk stefnan hjá mér að heimsækja frú Viktoríu bara á miðvikudögum... það tókst reyndar ekki alveg í vikunni en ég ónáðaði greyjið mun sjaldnar en oft áður... hehe alltaf að reyna að vera ánægð með eitthvað!

Þessi tala er rétt, sver það! og sú sem að ég sá og skrifaði niður 2. janúar var líka rétt! sem þýðir bara eitt... kroppurnn getur safnað ótrúlega miklum bjúg/vatni á stuttum tíma og þegar maður tekur sig svo á - þá er það fljótt að fara... Hef samt eiginlega lítinn sem engan áhuga á að vera eitthvað léttari - er bara að reyna að breyta einhverju af þessum kílóum úr fitu í vöðva :)
Ég er búin að horfa á þáttinn og er bara nokkuð sátt. Fannst reyndar alveg hrikalegt að heyra sjálfa mig segja svona "upphátt og opinbert" hvað ég var í rauninni orðin hrikalega þung... og myndirnar, jedúddamía - þvílík hörmung! En svona var ég víst bara!
Átti ágætis dag alveg... byrjaði hann á 5km rölti og þegar að búið var að koma ormum í skólann þá brunuðum við norður og ég skutli Árna á FSA í aðgerð á vinstri hendinni. Á meðan að doksi krukkaði í kallinn og gifsaði svo þá heimsótti ég örfáar búðir og líka líkamsræktarstöðina Átak. Ætlaði á Bjarg en fann hina fyrst... mín ekkert svo klár í að rata þarna fyrir norðan sko. Þetta er eflaust ágætis stöð til að rækta kroppinn en mér fannst þetta samt allt eitthvað skrýtið. Gerði samt slatta af einhverju sem í það minnsta skilaði mér rennsveittri og verulega aumri í rassi og lærum í sturtuna.

09.01.2012 22:30
Fiskur... bara dásemdin ein!
Þá er búið að sýna þáttinn á Skjá 1 en ég missti nú bara af því
Árni sagði að þetta hefði komið fínt út en hann er nú kannski ekki alveg hlutlaus
Krakkarnir sáu þetta líka, sem mér finnst gott að vissu leyti. Ég er nefnilega ekki alveg viss um að þau muni nokkuð eftir því hvernig ég var. Þau skilja vonandi betur núna af hverju ég er svona mikið að spá í hollu mataræði!
En talandi um hollt mataræði... krakkarnir báðu um kakósúpu í gærkvöldi og þar sem að svoleiðis fer oftast ekki vel í minn maga þá eldaði ég fisk handa mér.

grænt epli, sellerí (um að gera fyrst að ég var ein um að njóta... ormarnir mínir eru ekki hrifnir af þessu), sveppir og keila (já, fiskurinn keila sko)

ekkert smjör eða olía... bara smá PAM á pönnuna, sjóðhita og setja allt á í góða mínútu... svo bara vatn útá og lokið á pönnuna og leyfa þessu að malla í 5 mín ca, slökkva undir og bíða í aðrar 5 mín ÁN þess að taka lokið af!

Ferskt salat með og kvöldmaturinn uppfyllir öll "skilyrði"... hollt, próteinríkt og GOTT!! Mér fannst reyndar vanta kotasælu með en skrifum það á reikning Samkaupa sem buðu í dag bara uppá útrunna kotasælu í hillunum :/
Eins og venjulega þá misreiknaði ég magaplássið mitt og eldaði rúmlega tvöfaldan skammt... en ég á þá bara nesti á morgun ! Það er nú ekki verra
Margir kunna að finnst ég rosalega skrýtin og óþarflega "húkkt" á því að borða hollan mat og hreyfa mig. Ég viðurkenni fúslega að ég er skrýtin á margan hátt... en þetta er ekki eitt af því! Það að spá í því hvað ég borða er mér mjög mikilvægt því að ég er og verð alltaf sami átfíkillinn. Ég er alveg hætt að vonast til þess að "læknast" af þessu - eina sem ég get gert er að reyna að stjórna minni fíkn. Hreyfingin er líka bara af hinu góða og heldur mér við efnið. Ég er nefnilega þannig að það tekur mig skuggalega lítinn tíma að tapa mér alveg ! Til dæmis í sumar... fór í aðgerð í byrjun júní sem þýddi enga leikfimi í uþb mánuð. Ég byrjaði ekki aftur að hreyfa mig fyrr en í haust þegar að ég opnaði augun loksins fyrir því að ég var einu sinni enn að tapa mér í rugli! Á rúmlega 3 mánuðum þyngdist ég um 10 kg.... og nei, því miður er ég ekki að ýkja töluna :/
Ástæðan var til dæmis ofát af svona "góðgæti"

þær voru ófáar heimsóknirnar í fjárans bakaríið :( var eiginlega bara rosalega fegin þegar að því var lokað!

07.01.2012 08:11
eldhústilraunir
Vöknuð eldsnemma að venju og enginn félgsskapur nema af kisu krúttunum okkar... hvað er þá betra en að skunda í eldhúsið og búa til brjálæðislega góðan morgunmat til að njóta :)
Ákvað að gera smá "spari" útgáfu af prótein pönnsum... sem eru hjá mér reyndar hreint ekki neitt líkar pönnsu heldur frekar skonsu - póteitó, pótató! hverjum er ekki sama??
Hráefnið ekki flókið... 1 góð skeið af próteini, súkkulaðiprófteini... eggjahvíta (nei, ekki allur brúsinn sko!), 2 msk haframjöl og nokkur bláber!
Byrjum bara á því að hræra öllu saman... nema bláberin, þau bíða á kantinum smá stund!
Sjóðheit panna... já og þetta sem er á henni að auki er ca 1/4 tsk af kókosolíu...
Ekki má gleyma bláberjunum!
Ca 90 sek á hvorri hlið (fer eftir þykkt auðvitað) og kvikindið er tilbúið ... eða hvað? mann þarf nú eitthvað ofan á sko!

Af því að það er sparidagur þá skellti ég obbolítið af sykurlausri sultu ofan á ( sem ég kaupi aðallega til að fá krukkuna undan henni þegar að sultan er búin ), örlítið meira en smá af kotasælu og nokkur vínber... bara af því að þau voru svo girnileg í ísskápnum!
Get svo guðsvariðfyrirþað að ég er pakksödd og ánægð með árangurinn af eldhústilraunum morgunsins :)

Ákvað að gera smá "spari" útgáfu af prótein pönnsum... sem eru hjá mér reyndar hreint ekki neitt líkar pönnsu heldur frekar skonsu - póteitó, pótató! hverjum er ekki sama??
Af því að það er sparidagur þá skellti ég obbolítið af sykurlausri sultu ofan á ( sem ég kaupi aðallega til að fá krukkuna undan henni þegar að sultan er búin ), örlítið meira en smá af kotasælu og nokkur vínber... bara af því að þau voru svo girnileg í ísskápnum!
Get svo guðsvariðfyrirþað að ég er pakksödd og ánægð með árangurinn af eldhústilraunum morgunsins :)
Skrifað af Lena
06.01.2012 23:01
Að tapa sér...
Ójá, það hendir mig eins og svo marga aðra... og í kvöld skíttapaði ég baráttunni við grægðispúkann í mér. Fyrst kafaði ég óþarflega djúpt í döðlupokann og rúsínu baukinn ... og eins og það væri ekki nóg! nei, ég bara VARÐ að fá mér ís líka! Auðvitað var þetta engin lífsnauðsyn en mér tókst nú samt að telja sjálfri mér trú um að ég yrði samt að fá ís! Og núna situr maður næstum afvelta við tölvuna, illt í maga og geðvond yfir tapinu...

Á morgun verður bara betri dagur! laugardagar verða samt dagar sem ég leyfi mér að vera frjálslegri í mataræði án samviskubits... held mig samt enn við að "nammidagur" er ekki byrjaður fyrr en ég er búin að fara í ræktina.... klikkhausinn ég er alltaf að semja við sjálfa mig sko ;)
Er annars komin með nýtt prógramm frá þjálfara, fékk 4 daga prógramm og kláraði fjórða daginn í gær. Fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar. En svona af því að mig langaði að eiga góðan dag í ræktinni þá prófaði ég þetta hérna...

- Goblet hnébeygja
- Mountain climber
- Ketilbjöllu sveifla
- Armbeygjur
- Splitt hnébeygjur, með hoppi
- Standandi róður m/kb, halla fram
- KB hliðarhnébeygja, kb snertir gólf
- Planki
- Framstig með snúning + lóði
- Axlapressa m/lóðum eða ketilbjöllum
30 sek hver æfing, 15 sek hvíld á milli og þrír hringir.... brjálæðislega fínn rúntur sem endaði á 10 mín hjólatúr með miklu álagi, nettri axlaæfingu og svo skrillljón mism magaæfingar fyrir allan peninginn - þetta var nú bara svo gaman að kannski prófa ég bara annan svona rúnt á morgun!
Skrifað af Lena
05.01.2012 12:34
Prótein pönnsur
Eitt af mínum stærstu vandamálum er að ég á frekar erfitt með að stjórna brauðgræðispúkanum í mér. Mér finnst brauð gott, flest brauð. Er reyndar svo "heppin" að finnast gróft brauð betra en fínt. En á slæmum degi get ég alveg gúffað í mig óhóflega miklu magni af brauði í hinum ýmsu útgáfum... venjulegt brauð, rúgbrauð, flatbrauð, hrökkbrauð, skonsur... allt er þetta alltof gott - en allt saman stútfullt af kolvetnum sem fara mjög illa í mig :/
Einhvern tíman sá ég á netinu uppskrift að prótein pönnukökum... bara egg og prótein! ekkert hveiti! tær snilld sko... hef verið að prófa að gera þetta úr eggjahvítu og próteini og kemur rosalega vel út. Tekur 2-3 mín á morgnana að hræra í og steikja eina góða prótein pönnsu og svo er bara að finna gott álegg :) Í morgun var það ávaxtasalat - algjört nammi!

Þetta er reyndar ekki mín útgáfa... mín er sko með súkkulaðipróteini sem gerir hana sko bara betri!

- 1
Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 5950
Samtals gestir: 1828
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 16:06:23
Eldra efni